Lúxbert FÁ TILBOÐ
ISEN
RÁÐGJÖF · LJÓS · STÝRINGAR · UPPSETNING

Ein heildarlausn
fyrir þitt verkefni.

Segðu okkur frá rýminu og því sem þú vilt ná fram. Við ráðleggjum um lýsinguna, útvegum ljós og stýringar og getum séð um uppsetningu.

FÁ TILBOÐ Í RÁÐGJÖF OG LÝSINGU ↓
LÝSING FYRIR HVERT RÝMI

Frá fyrstu hugmynd að fullbúinni lýsingu.

Við förum yfir forsendur verkefnisins, teikningar og myndir ef þær liggja fyrir. Í framhaldinu ráðleggjum við um gerð ljósa, staðsetningu, birtu, litahitastig og stýringar eftir því sem verkefnið kallar á.

Við útvegum ljósin og viðeigandi stýringar og getum séð um uppsetningu þeirra. Þú færð einn tengilið fyrir lausnina alla. Umfang og kostnaður eru ákveðin út frá hverju verkefni.

SVONA VINNUM VIÐ

Einfalt ferli frá byrjun.

01

Þú segir frá verkefninu

Sendir stutta lýsingu, teikningar og myndir ef þær eru til.

02

Við förum yfir þarfirnar

Ræðum notkun rýmisins, óskir, tímasetningu og þau atriði sem þarf að skoða nánar.

03

Þú færð tilboð

Við sendum tillögu að næstu skrefum og tilboð í ráðgjöf, ljós og uppsetningu eftir því sem við á.

FYRIRSPURN

Fáðu tilboð í ráðgjöf og lýsingu.

Fylltu út það sem þú veist nú þegar. Þú getur bætt við einni teikningu og einni mynd af rýminu eða húsinu. Ef skjölin eru fleiri eða stærri geturðu sent þau síðar á info@luxbert.is.

Skrárnar eru valfrjálsar. Við höfum samband og förum yfir næstu skref áður en vinna hefst.

Upplýsingar um þig
Verkefnið
Teikningar og myndir

PDF, JPG eða PNG. Ein skrá í hvorum reit; samanlagt undir 7 MB.