Rétt lýsing fyrir
hvert verkefni.
Við bjóðum heildarlausn fyrir heimili og atvinnuhúsnæði: ráðgjöf, ljós og stýringar ásamt uppsetningu.

Þekking og ráðgjöf um lýsingu.
Hugmyndin að Lúxbert kviknaði út frá verkefnum við hönnun og val á lýsingu þar sem ljós voru keypt beint frá framleiðendum. Með því var hægt að velja réttu lausnina fyrir hvert rými og ná um leið fram hagkvæmari kjörum án þess að gefa eftir í gæðum.
Reynslan nær bæði til lýsingar fyrir heimili og atvinnuhúsnæði, meðal annars brautarlýsingar og kastara fyrir verslanir, ásamt uppsetningu. Við leggjum áherslu á að skoða hvert verkefni út frá notkun rýmisins, birtuþörf, orkunýtni og útliti.
Markmiðið er einfalt: að vera einn aðili sem þú getur leitað til með allt verkefnið – frá ráðgjöf og vali á ljósum og stýringum til afhendingar og uppsetningar.
Ertu með verkefni í undirbúningi?
Segðu okkur frá rýminu og við förum yfir hvaða lýsing hentar best.
FÁ TILBOÐ