
Þægileg og jöfn vinnulýsing.
Góð lýsing styður við einbeitingu og vinnuumhverfi. Við veljum lausnir með áherslu á jafna birtu, litendurgjöf og litla glýju.
Frá skrifstofum og vinnurýmum til vöruhúsa og íþróttahúsa. Við veljum lýsingu út frá notkun, lofthæð, birtuþörf og rekstrarkostnaði.
SKOÐA LAUSNIR ↓Ólík atvinnurými kalla á ólíka lýsingu. Við horfum meðal annars til lux-gilda, glýju, litendurgjafar, lofthæðar og orkunotkunar.

Góð lýsing styður við einbeitingu og vinnuumhverfi. Við veljum lausnir með áherslu á jafna birtu, litendurgjöf og litla glýju.

High Bay og IP65 línuljós henta vel í vöruhús, verkstæði og iðnaðarrými þar sem ending, skilvirkni og góð dreifing skipta máli.

Rétt ljósdreifing og næg birtustig skipta máli fyrir leikmenn, áhorfendur og upptökur. Við veljum búnað eftir lofthæð og notkun salarins.
Hér er sýnishorn af lausnum sem henta skrifstofum, vöruhúsum, verkstæðum, íþróttahúsum og fjölbreyttum atvinnurýmum.

Jöfn og skilvirk lýsing fyrir skrifstofur, opið vinnurými og önnur rými þar sem þægileg grunnlýsing skiptir máli.

Öflugt LED-ljós fyrir vöruhús, iðnaðarhúsnæði og íþróttahús með mikilli lofthæð.

Endingargóð lausn fyrir vöruhús, verkstæði, bílskúra og önnur krefjandi rými þar sem ryk og raki geta verið til staðar.

Nettur kastari fyrir fundarrými, móttökur, sýningarsvæði og aðra staði þar sem beina þarf ljósinu nákvæmlega.

Sveigjanleg lausn þar sem hægt er að sameina kastara og línuljós og færa lýsinguna þegar rými eða starfsemi breytist.

Stillanleg áherslulýsing fyrir móttökur, skrifstofur, sýningarrými og önnur svæði þar sem meiri sveigjanleika er þörf.
Við veljum vörur út frá rýminu, lofthæð, æskilegum lux-gildum, notkunartíma og möguleikum á ljósastýringu.
SPYRJA UM VÖRUR →Við förum yfir stærð rýmis, lofthæð, starfsemi og kröfur um birtustig.
Við veljum ljós, ljósdreifingu, litahita og stýringar sem passa verkefninu.
Við getum séð um faglega uppsetningu og afhent fullbúna lýsingarlausn.
Segðu okkur frá rýminu og við aðstoðum þig við að velja rétta lýsingu fyrir starfsemina.
HAFA SAMBAND →