LÚXBERTLÝSING · RÁÐGJÖF · UPPSETNING FYRIRSPURN
HÓTEL & VEITINGASTAÐIR

Lýsing sem skapar
rétta stemningu.

Frá móttöku og hótelgöngum til veitingasala og setustofa. Við veljum lýsingu sem styður við hönnun rýmisins, sýnir liti rétt og skapar þægilegt andrúmsloft.

SKOÐA LAUSNIR
LAUSNIR EFTIR RÝMI

Rétt ljós á réttum stað.

Á hótelum og veitingastöðum þarf lýsingin bæði að vera hagnýt og hluti af upplifun gestsins. Litahiti, litendurgjöf, glýja og stýring skipta þar miklu máli.

Móttaka og setustofa á hóteli með línulegri lýsingu
MÓTTAKA & SAMEIGINLEG RÝMI

Fyrsta upplifunin byrjar með ljósinu.

Hlý og vönduð grunnlýsing ásamt áherslulýsingu hjálpar til við að móta rýmið og draga fram efni, listaverk og innréttingar.

Hótelgangur með innfelldri lýsingu
GANGAR & HERBERGI

Þægileg lýsing með lítilli glýju.

Innfelld downlight, veggljós og stýringar henta vel í ganga og herbergi þar sem hlý birta, þægindi og látlaust útlit eru mikilvæg.

Bjartur veitingastaður með fjölbreyttri lýsingu
VEITINGASALIR

Góð litendurgjöf lætur mat og rými njóta sín.

CRI 90+ og rétt val á litahita hjálpar til við að sýna mat, borðbúnað og innréttingar á náttúrulegan og aðlaðandi hátt.

Veitingastaður með hlýrri og dimmanlegri stemningslýsingu
STEMNING & ÁHERSLUR

Sveigjanleg lýsing frá degi til kvölds.

Dimmanleg downlight, brautarkastarar og veggljós gera kleift að breyta stemningu og beina athyglinni þangað sem hennar er þörf.

VALDAR VÖRUR

Vörur fyrir hótel og veitingastaði.

Valdar lausnir úr Alphaluce og Ronse bæklingunum fyrir grunnlýsingu, stemningu og nákvæma áherslulýsingu.

Alphaluce ALFA innfellt downlight
DOWNLIGHT · ALPHALUCE

ALFA – ALDL1966

Innfelld hágæða lýsing fyrir móttökur, ganga, herbergi og veitingasali þar sem vönduð litendurgjöf og látlaust útlit skipta máli.

10WCRI 97+2700–4000K15°–55°
Alphaluce DOT IP65 innfellt downlight
DOWNLIGHT · ALPHALUCE

DOT – ALDL1779

Nett innfellt ljós sem hentar vel í hótelherbergi, baðherbergi og ganga þar sem lítil stærð og góð ljósgæði eru mikilvæg.

3WCRI 92+IP6515°–55°
Alphaluce OVAL Indoor veggljós
VEGGLJÓS · ALPHALUCE

OVAL Indoor – ALWL0143

Stílhreint veggljós fyrir ganga, herbergi, setustofur og veitingarými. Hentar vel sem hluti af hlýrri og lagskiptri lýsingu.

8WCRI 92+2700–4000K
Alphaluce ALTR0225 brautarkastari
BRAUTARKASTARI · ALPHALUCE

ALTR0225

Sveigjanleg áherslulýsing fyrir móttökur, veitingasali, bar, listaverk og aðra fleti sem þarf að draga sérstaklega fram.

15WCRI 92+2700–4000K15°–50°
Ronse Spot 90 XL BLACK HOLE kastari
KASTARI · RONSE

Spot 90 XL – BLACK HOLE

Öflugur kastari með CRI 90 fyrir veitingasali og stærri sameiginleg rými þar sem beina þarf ljósinu nákvæmlega á borð, veggi eða sýningar.

30W / 40WCRI 90BLACK HOLE
Brautir og tengi fyrir lýsingu
BRAUTIR & TENGI

Brautir og tengi

Sveigjanlegt kerfi sem gerir auðvelt að færa kastara, bæta við ljósum og aðlaga lýsinguna þegar skipulag eða notkun rýmisins breytist.

1–4 m brautirfjölbreytt tengisveigjanleg uppsetning

Við veljum ljósin eftir innanhússhönnun, litahita, CRI, glýju, dimmingu og þeirri stemningu sem á að ná fram í hverju rými.

SPYRJA UM VÖRUR
FRÁ HUGMYND AÐ UPPLIFUN

Lýsingin verður hluti af hönnuninni.

01

Greining

Við skoðum notkun rýmis, innréttingar, dagsbirtu og þá stemningu sem á að skapa.

02

Val á lýsingu

Við veljum ljós, geislahorn, litahita, dimmingu og stýringar sem vinna saman.

03

Uppsetning

Við getum séð um uppsetningu og stillingu þannig að lýsingin skili réttri upplifun frá fyrsta degi.

HÓTEL & VEITINGASTAÐIR

Ertu með hótel eða veitingarými í hönnun?

Segðu okkur frá verkefninu og við hjálpum þér að velja lýsingu sem sameinar útlit, þægindi og rétta virkni.

HAFA SAMBAND