LÚXBERTLÝSING · RÁÐGJÖF · UPPSETNING FYRIRSPURN
ÚTILÝSING

Öruggt ljós.
Minni orkunotkun.

Skilvirkar og stýranlegar lýsingarlausnir fyrir götur, bílastæði, jarðgöng, byggingar, lóðir og opin svæði.

SKOÐA LAUSNIR
LAUSNIR EFTIR AÐSTÆÐUM

Lýsing sem stenst kröfur.

Útilýsing þarf að sameina öryggi, rétta ljósdreifingu, lága orkunotkun og góða endingu. Við veljum lausn eftir svæði, lofthæð, umferð og þeim kröfum sem gerðar eru til IP- og IK-varnar.

Götulýsing að kvöldi
GÖTUR & OPIN SVÆÐI

Jöfn og þægileg lýsing.

Rétt ljósdreifing og stýringar hjálpa til við að ná góðri birtu þar sem hennar er þörf og draga um leið úr orkunotkun og óþarfa glýju.

Bílastæðahús með línulýsingu
BÍLASTÆÐAHÚS

Örugg og endingargóð lýsing allan sólarhringinn.

IP-varin línulýsing með jafnri og góðri ljósdreifingu hentar vel í bílastæðahús þar sem raki, ryk og mikil notkun gera kröfur um endingu og áreiðanleika.

Jarðgöng með LED lýsingu
JARÐGÖNG

Stöðug lýsing fyrir krefjandi aðstæður.

Öflug og áreiðanleg línulýsing fyrir göng þar sem jöfn birta, gott skyggni og mikil ending skipta máli.

Bygging og vinnusvæði upplýst að kvöldi
BYGGINGAR & LÓÐIR

Öflug lýsing fyrir stór svæði.

Kastarar með miklu ljósmagni henta vel fyrir byggingar, vinnusvæði, iðnaðarlóðir og önnur opin svæði þar sem þarf öfluga og markvissa lýsingu.

VALDAR VÖRUR

Vörur fyrir útilýsingu.

Valdar lausnir fyrir götulýsingu, jarðgöng, bílastæðahús, lóðir og almenna útilýsingu.

Philips RoadFlair Pro götuljós
GÖTULÝSING · PHILIPS

RoadFlair Pro BRP59X

Afkastamikið götuljós fyrir götur og opin svæði með fjölbreyttum ljósdreifingum og möguleikum á snjallri stýringu.

allt að 48.900 lmIP66IK08160–200 lm/WDALI / SR
FL52 LED kastari
KASTARI

FL52 LED kastari

Öflugur kastari fyrir byggingar, iðnaðarsvæði, vinnusvæði og stórar lóðir þar sem þarf mikið ljósmagn og góða endingu.

30–600W160 lm/WIP66CRI 80+5 ára ábyrgð
LED línuljós fyrir göng og bílastæðahús
LÍNULJÓS · GÖNG & BÍLASTÆÐAHÚS

LED línuljós

Línulýsing fyrir jarðgöng, bílastæðahús og önnur krefjandi rými. Hægt að yfirborðsfesta eða hengja upp og fá með DALI stýringu.

105 / 130 lm/W3000–6500KCRI 83DALI / 0–10V5 ára ábyrgð
Alphaluce OVAL Outdoor veggljós
VEGGLJÓS · ALPHALUCE

OVAL Outdoor – ALWL0090

Stílhreint IP65 veggljós fyrir útveggi, innganga, ganga utandyra og svæði þar sem hönnun og vönduð litendurgjöf skipta máli.

15W1300 lmCRI 92+IP652700–4000K
Alphaluce bollard útiljós
STÍGA- & GARÐLÝSING · ALPHALUCE

Bollard – ALSL0110

Nett bollard-ljós fyrir göngustíga, aðkomur, garða og opin svæði þar sem þörf er á lágri og þægilegri lýsingu.

7W560 lmCRI 90+IP652700–4000K

Við veljum ljósdreifingu, afköst, litahita, IP/IK-vörn og stýringu eftir aðstæðum og getum aðstoðað við lýsingarútreikninga fyrir verkefnið.

SPYRJA UM VÖRUR
FRÁ AÐSTÆÐUM AÐ LAUSN

Rétt lýsing fyrir hvert útisvæði.

01

Greining

Við skoðum svæðið, notkun þess, hæðir, umferð og þær umhverfiskröfur sem lýsingin þarf að standast.

02

Val og útreikningar

Við veljum ljós, ljósdreifingu og stýringar og getum útbúið lýsingarútreikninga fyrir verkefnið.

03

Uppsetning

Við getum séð um uppsetningu og stillingu þannig að lýsingin skili réttri birtu og virkni frá fyrsta degi.

ÚTILÝSING

Ertu með útisvæði sem þarf að lýsa?

Segðu okkur frá verkefninu og við hjálpum þér að velja lausn sem sameinar öryggi, endingu og hagkvæman rekstur.

HAFA SAMBAND