LÚXBERTLÝSING · RÁÐGJÖF · UPPSETNING FYRIRSPURN
LUMEN · lm

Hvað eru lumen (lm)?

Lumen, skammstafað lm, segja til um hversu mikið sýnilegt ljós ljósgjafi gefur frá sér. Því fleiri lumen sem ljós gefur frá sér, því meira er heildarljósmagnið.

LESA MEIRA
FRÓÐLEIKUR

Lumen, watt og lux – hver er munurinn?

Lumen, skammstafað lm, segja til um hversu mikið sýnilegt ljós ljósgjafi gefur frá sér. Því fleiri lumen sem ljós gefur frá sér, því meira er heildarljósmagnið.

Lumen vs. watt

Watt (W) segja til um raforkunotkun en lumen (lm) segja til um ljósmagn. Þegar LED-ljós eru borin saman er því gagnlegra að skoða lumen en watt eitt og sér.

Hvað þýðir lm/W?

Lumen á watt, lm/W, segja til um ljósnýtni. Hærra lm/W þýðir að ljósið gefur meira ljósmagn fyrir hvert watt sem það notar og getur því verið orkunýtnara.

Lumen vs. lux

Lumen mæla heildarljósmagn frá ljósgjafa en lux mæla hversu mikið ljós fellur á ákveðið yfirborð. Þess vegna er ekki hægt að ákveða rétta lýsingu fyrir rými út frá lumen-tölu einni og sér.